Hækkun áfengiskaupaaldurs fækkar banaslysum vegna ölvunaraksturs
Árið 1985 var áfengiskaupaaldur í New York fylki í Bandaríkjunum hækkaður úr 19 í 21 ár. Nú, 30 árum síðar, kemur í ljós að banaslysum vegna ölvunaraksturs hefur fækkað um 60%. Fylkisstjóri New York, Andrew Cuomo, heldur því fram að þarna séu bein tengsl á milli.
Lesa meira
Mini lagt í stæði á heimsmeti
Vart líður sú vika að ekki sé reynt að setja heimsmet einhvers konar, allt í þeim tilgangi að komast á spjöld Heimsmetabókar Guinness. Í síðustu viku gerði breskur ökumaður að nafni Alastair Moffat met með [...]
Hjördís og Sighvatur Íslandsmeistarar
Hjördís og Sighvatur Íslandsmeistarar Í dag, sunnudaginn 20. septmember, fór fram seinni hluti Íslandsmeistarakeppninnar í Ökuleikni. Í gær var keppt á trukkum og rútum en í dag var keppt á fólksbílum. Ekið var [...]
Björgvin tvöfaldur Íslandsmeistari á rútum og trukkum
Í dag, laugardaginn 19. september, fór fram Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á trukkum og rútum. Um var að ræða opna Íslandsmeistarakeppni þar sem allir með meirapróf gátu skráð sig. Allir bílar sem ekið var á í [...]
Hafa kröfur til reiðhjóla slaknað?
Frá árinu 2005 hefur Brautin-bindindisfélag ökumanna kannað árlega stöðu á skyldubúnaði reiðhjóla í reiðhjólaverslunum. Reglugerð um búnað reiðhjóla er orðin gömul eða frá 1994 en þar er tilgreint að eftirfarandi eigi að vera á reiðhjólum: [...]
300.000 farþegar hafa farið veltu með beltin spennt
Þann 17. júní var Veltibíllinn opinn fyrir gesti við Sundlaug Kópavogs í tilefni hátíðahaldanna. Sá merkisatburður gerðist að farþegi númer 300.000 prófaði bílinn við það tækifæri. Það var Karen Inga Björgvinsdóttir sem var farþegi númer [...]
Nýr veltibíll Brautarinnar
Friðbert Friðbertsson afhendir Einari Guðmundssyni, formanni Brautarinnar, og Jóni Hauki Edwald, framkvæmdastjóra Ökuskóla 3, nýjan Veltibíl. Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu stýrði afhendingunni. Hekla endurnýjaði samstarfssamning við Brautina síðastliðið sumar og í kjölfarið var [...]
Steggur keppir í Ökuleikni
Þegar starfsmaður Kynnisferða ákvað að gifta sig leituðu samstarfsmenn hans til Brautarinnar um að halda Ökuleikni fyrir brúðgumann í steggjuninni. Að sjálfsögðu var sett upp Ökuleiknibraut á Sprinter eins og Kynnisferðir nota í starfsemi sinni. Brautin var [...]
Aðalfundur Brautarinnar
Aðalfundur Brautarinnar - bindindisfélags ökumanna verður haldinn þriðjudaginn 26. maí kl. 18:00 í Borgartúni 41.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Þeir sem hafa greitt félagsgjöld 2014 hafa atkvæðisrétt.
Stjórn Brautarinnar
Veltibíllinn í tónlistarmyndbandi
Hljómsveitin Vintage Caravan er að gera myndband um mistök fólks. Einn þeirra ólánssömu ók drukkinn og velti bílnum sínum og ekki í belti. Hljómsveitin leitaði til Brautarinnar hvort hægt væri að sviðssetja veltuna í veltibílnum. [...]