IMG_0654Í dag, laugardaginn 19. september, fór fram Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á trukkum og rútum. Um var að ræða opna Íslandsmeistarakeppni þar sem allir með meirapróf gátu skráð sig. Allir bílar sem ekið var á í dag voru af gerðinni Mercedes Benz.

Fyrst fór fram rútuökuleikni þar sem ekið var í gegnum þrautaplan á stórri rútu annars vegar og lítilli rútu hins vegar. Átta keppendur tóku þátt sem var nokkuð undir þátttöku liðinna ára en veðrið var svo sem ekki upp á marga fiskana.

Um kl. 13:30 hófst svo trukkakeppnin þar sem ekið var á stórum Actros annars vegar og Sprinter sendibíl hins vegar. Flestir rútukarlarnir tóku þátt í trukkakeppninni en einnig nokkrir til viðbótar.

Það var Björgvin Gunnarsson sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum í báðum keppnum og er hann því tvöfaldur Íslandsmeistari. Þá var lið hans, Smuraparnir, einnig hlutskarpast í liðakeppninni á trukkum.

Það var Brautin – bindindisfélag ökumanna sem stóð fyrir keppninni í samstarfi við Öskju, Matfugl, Ölgerðina, Ökukennarafélag Íslands, SBA-Norðurleið, Eimskip og Snæland Grímsson.

Á morgun, sunnudaginn 20. september, fer seinni hluti keppninnar fram þar sem haldin verður Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á fólksbílum. Þá verður keppt á VW bílum sem Hekla lánar.

Rútur:

  1. Björgvin Gunnarsson, 314 sekúndur
  2. Smári Baldursson, 338 sekúndur
  3. Kristján Jóhann Bjarnason, 383 sekúndur

Lið  Smára Baldurssonar og Atla Gríms Ásmundssonar, Driver, lenti í fyrsta sæti.

Trukkar:

  1. Björgvin Gunnarsson, 217 sekúndur
  2. Sigurður Sigurbjörnsson, 240 sekúndur
  3. Óskar Kristófer Leifsson, 268 sekúndur

Lið Björgvins Gunnarsonar og Sigurðs Sigurbjörnssonar, Smuraparnir, lent í fyrsta sæti.

Rútu- og trukka-kuleikni 2015 – Úrslit

Myndir frá keppninni í dag.

Guðmundur Karl Einarsson

19. september 2015 15:28