Ályktun Aðalfundar Brautarinnar 2026

Brautin sendir út ákall til samfélagsins um að standa vörð um forvarnir á Íslandi.

Sérhver einstaklingur á skilið að þrífast í samfélagi sem verndar hann fyrir ágangi áfengisiðnaðarins. Lykilþættir í því eru:

  • Takmarkað framboð á áfengi.
  • Hærra aldurstakmark til kaupa á áfengi heldur en nágrannaþjóðir.
  • Verðlagning sem setur heilsu í fyrsta sæti.
  • Vernd gegn markaðssetningu áfengis.
  • Samstaða foreldra, sveitarfélaga og yfirvalda sem standa saman að forvarnar-, heilbrigðis- og meðferðarþjónustu.

Lýðheilsustefnan til ársins 2030 sem Alþingi samþykkti árið 2021 og áfengislögin nr. 75/1998 vernda þetta íslenska módel.

Aukið aðgengi að áfengi eykur notkun og ölvunarakstur

Grafið er undan okkar forvörnum með villandi umræðu og núna getur hver sem er pantað sér vímuna í síma sínum. Dómstólar hafa staðfest að netverslun með áfengi innanlands brjóti gegn gildandi áfengislögum. Íþróttafélög og tómstundaafþreyinginu er undir þrýstingi um að selja áfengi á viðburðum sem börn, ungmenni og fjölskyldur sækja.

Ráðamenn þurfa að stíga fram. Alþingi getur hafnað frumvarpi 479. Sveitarfélög geta haldið áfengi frá íþróttaviðburðum.

Áfengi skaðar meira en áður var talið!

Íslenskir læknar hafa verið óþreytandi á að vekja athygli á að áfengisnotkun er ekki skaðlaus, þvert á móti.

Brautin vill draga úr ölvunarakstri!

Tölfræði sýnir að ölvun er orsök í einu af hverjum fimm banaslysum. Enginn á skilið að láta lífið eða hljóta örkuml í umferðinni af völdum ölvunar ökumanna.

Brautin hvetur ráðamenn til að koma böndum á ólöglega sölu áfengis og virða þá forvarnastefnu sem hefur þótt vera til fyrirmyndar á heimsvísu undanfarna áratugi með einkasölu áfengis ÁTVR, banni við markaðssetningu, háu verði og lágmarksaldri til kaupa áfengis 20 ára.

Samþykkt á aðalfundi Brautinnar árið 2026.

Guðmundur Karl Einarsson

1. september 2026 23:25