Það er með virðingu og þakklæti sem við kveðjum félaga okkar, Gunnar Þorláksson, við leiðarlok. Við munum allmargar eldræður er kappinn stóð í pontu að venju, menn jú hlustuðu er hávær og traust röddin heyrðist. Það skipti ekki máli hvort rætt væri almennt um bindindi og um leið væntumþykju náungans, verkefnin framundan eða stjórnun á skemmtunum. Allt var svo einlægt og gott, öllum var ljóst að Gunnar var mannvinur í alla staði, ljúflingur alla tíð. Gunnar var tryggur félagsmaður og gegndi meðal annars embætti forseta BFÖ árin 1979 til 1981.

Við sendum aðstandendum Gunnars okkar dýpstu samúðarkveðjur með þakklæti fyrir samfylgdina. Minningin lifir um langa tíð.

Páll H. Halldórsson, formaður

Páll H. Halldórsson

13. júlí 2023 11:55