Aðalfundur Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna verður haldinn miðvikudaginn 19. apríl 2023 kl. 18:00. Fundurinn fer fram á skrifstofu IOGT í Hverafold 1-3, Reykjavík.

Dagskrá fundarins er samkvæmt 4. greinar laga félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. Reikningsárið er almanaksárið.
  3. Stjórnarkjör.
  4. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
  5. Ákvörðun félagsgjalda.
  6. Önnur mál.

Guðmundur Karl Einarsson

4. mars 2023 13:08