Aðalfundur Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna verður haldinn þriðjudaginn 11. maí 2021 kl. 18:00. Fundurinn fer fram í Víkurhvarfi 1, gengið er inn að ofanverðu. 

Dagskrá fundarins er samkvæmt 4. greinar laga félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. Reikningsárið er almanaksárið.
  3. Stjórnarkjör.
  4. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
  5. Ákvörðun félagsgjalda.
  6. Önnur mál.

Fundarmönnum verður boðið að skoða og prófa nýja Veltibíl félagsins. 

Guðmundur Karl Einarsson

6. apríl 2021 11:21