Kæri félagsmaður í Brautinni

Stjórn Brautarinnar vill minna þig á aðalfund félagsins en hann verður haldinn miðvikudaginn 28. maí kl. 18.00 í Brautarholti 4a í Reykjavík.   Félagið varð 60 ára á starfsárinu og mörg ný tækifæri hafa skapast fyrir félagið að vinna að sínum markmiðum.

Á dagskrá aðalfundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. Kynntar verða nýjar kannanir sem félagið hefur verið að gera í umferðinni. Þá mun Guðni Sveinn Theodórsson ökukennari halda erindi um ýmsar nýjungar í nýjum bílum.

Veitingar verða í boði félagsins.

Félagið vill minna á að félagar fá afslátt hjá N1 á eftirfarandi þjónustu:

  • 6 kr afsláttur af hverjum eldsneytislítra
    4 kr af lítra við dælu og 2 kr inn á Safnkort
  • 15% afsláttur af rekstrarvörum á þjónustustöðvum:
    12% afsláttur á kassa og 3% inn á Safnkort. Gildir af öllum vörum nema tóbaki, símakortum, happadrættismiðum og tímaritum
  • 10-20% afsláttru af bíla- og rekstrarvörum í verslunum (sjá lista á heimasíðu Brautarinnar)

Þá hefur Bílaleiga Akureyrar boðið okkur 10% afslátt af bílaleigubílum.

Stjórnin  vonast til að sjá þig á fundinum.

Einar Guðmundsson
formaður

Einar Guðmundsson

23. maí 2014 17:14