Ákveðið hefur verið að Íslandsmeistarakeppnin í Ökuleikni verði haldin sunuudaginn 30. september á svæði Ökuskóla 3 á Kirkjusandi í Reykjavík.

Eins og venjulega er keppt í kvennariðli og karlariðli. Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum riðli.

Mæting er á Kirkjusand kl. 12:30. Keppni hefst kl. 13.

Þátttökugjald: 1.000 kr

Skráning: Smelltu hér til að skrá þig. Einnig er hægt að hringja í síma 588 9070.

Skráningu lýkur 28. september

Ökuleikni 2012 – Þrautaplan Íslandsmeistarakeppni

Keppnin er haldin í samstarfi við Heklu sem gefur lánar bifreiðar til að keppa á, Ökukennarafélag Íslands, Sjóvá, N1 sem gefur sigurvegurum eldsneytisinneign og Vífilfell sem býður keppendum upp á Coke Zero.


Guðmundur Karl Einarsson

23. september 2012 16:43