Mikil aðsókn var að veltibílnum að venju þegar hann var á Selfossi laugardaginn 9. júní. Rúmlega 600 manns fóru í bílinn og voru það allt frá því að vera ungabörn og upp í fólk á sjötugsaldri.  Óumdeilt er hve skilaboðin eru sterk fyrir þá sem prófa bílinn.  Það borgar sig að spenna beltin – ALLTAF.

Mikil röð myndaðist að venju og komust færri að en vildu.

Veltibíllinn er á Kótelettunni bæði laugardag og sunnudag.

Einar Guðmundsson

9. júní 2012 21:10