Dagana 24 og 25. apríl stendur Brautin fyrir Ökuleikni á rútum fyrir starfsmenn Kynnisferða. Markmiðið er að auka meðvitund ökumanna fyrirtækisins um nákvæmni í akstri og ökuhæfni. Í dag, þriðjudaginn 24. apríl, fór fram fyrri hluti keppninnar. Keppt var á tveimur bílum: Sprinter og Bova. Keppendur gátu ekið á báðum bílum eða öðrum hvorum.

Í A keppninni á Bova urðu úrslitin þessi:

  1. Karl Hallgrímsson (184 sek)
  2. Sigurður Steinsson (202 sek)
  3. Ólafur Haukur Ólafsson (212 sek)

Í B keppninnin á Sprinter urðu úrslitin þessi:

  1. Karl Hallgrímsson (139 sek)
  2. Ólafur Haukur Ólafsson (148 sek)
  3. Auðunn S. Auðunsson (170 sek)

Smelltu hér til þess að skoða myndir frá keppninni.

Ökuleikni Kynnisferða 24. apríl 2012 – Úrslit

Á morgun, miðvikudaginn 25. apríl, verður svo aftur keppt á Sprinter og Bova fyrir þá bílstjóra sem ekki komust í dag.

Guðmundur Karl Einarsson

24. apríl 2012 21:34