Verðlaunahafar dagsins

Í dag, 15. október, var haldin Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á trukkum og rútum. 15 keppendur tóku þátt og kepptu ýmist á rútum og/eða trukkum.Keppnin var í raun tvær keppnir, önnur á rútum og hin á trukkum.

Keppnin var spennandi og munaði aðeins örfáum sekúndum á efstu mönnum. Keppendur tóku þátt sem einstaklingar en mynduðu einnig lið þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá.

Páll H. Halldórsson, formaður Brautarinnar, lýsti yfir mikilli ánægju með daginn sem og keppendur. Hann segir keppni sem þessa nauðsynlega þar sem hún skerpi á því sem þeir kunna fyrir. Menn verði betri ökumenn eftir að hafa tekið þátt í ökuleikni, bæði þeir sem standa sig best og sigra keppninna en ekki síður hinir sem verr gekk. Öll akstursþjálfun skili sér að lokum til manna sem betri ökumenn í hinni almennu umferð. Páll skorar á fyrirtæki að huga að akstursmenningu og senda öflug lið til keppni að ári.

Kynnisferðir lánuðu Benz Sprinter

Það var Brautin – bindindisfélag ökumanna sem stóð fyrir keppninni í samstarfi við Öskju, Sjóvá, Vífilfell, Ökukennarafélag Íslands og Eimskip. Þá lánuðu Snæland Grímsson, Kynnisferðir og Ölgerðin Egill Skallagrímsson bifreiðar til að keppa á og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Smelltu hér til að skoða myndir frá keppninni.

Snæland Grímsson lánaði stóra rútu til keppninnar

Rútukeppni

Einstaklingar rútur:

1. sæti Mikael Jónsson, Íslandspósti 478 sek
2. sæti Smári Baldursson 498 sek
3. sæti Atli Grímur Ásmundsson, Íslandspósti 500 sek

Liðakeppni rútur:

1. sæti Íslandspóstur 529 sek
2. sæti Allrahanda 2 540 sek
3. sæti Allrahanda 1 689 sek

Trukkakeppni

Einstaklingar trukkar:

1. sæti Finnur Trausti Finnbogason, Íslandspósti 406 sek
2. sæti Atli Grímur Ásmundsson, Íslandspósti 430 sek
3. sæti Örn Steinar Arnarson, Sendó 438 sek

Benz Sprinter frá Öskju

Liðakeppni trukkar:

1. sæti Íslandspóstur 418
2. sæti Sendó 451
3. sæti Allrahanda 536

Úrslit rútu- og trukkaökuleikni 2011

Guðmundur Karl Einarsson

15. október 2011 17:02