Þann 15. október 2011 verður seinni hluti Íslandsmeistarakeppninnar í Ökuleikni haldinn á svæði Ökuskóla 3 við Borgartún. Um er að ræða Trukkaökuleikni og Rútuökuleikni.

Keppnin fer þannig fram að fyrst verður keppt á tveimur rútum (stórri annars vegar og lítilli hins vegar) og hins vegar á tveimur trukkum (stórum og litlum). Ekið er í gegnum þrautaplön og tíminn tekinn. Fyrir hverja villu sem keppandi gerir bætast 10 sek við tímann.

Keppendur mynda lið, t.d. frá þeim fyrirtækjum sem þeir starfa hjá, og verða veitt verðlaun bæði í einstaklingskeppninni og liðakeppninni.

Meirapróf er skilyrði fyrir þátttöku og skulu keppendur hafa ökuskírteini meðferðis.

Tímasetning: Laugdagurinn 15. október. Rútuökuleikni hefst kl. 12 og Trukkaökuleikni kl. 14.

Staður: Ökuskóli 3 við Borgartún

Þátttökugjöld: 1.000 kr á mann

Auglýsing fyrir rútu- og trukkaökuleikni 2011 Auglýsinguna má prenta út og hengja upp á vinnustöðum atvinnubílstjóra.

Skráning: Fer fram hér á vefnum eða í síma 588 9070. Skráningu lýkur föstudaginn 14. október.

Hér má sjá myndir frá keppninni 2010.

Þrautaplön trukkar og rútur 2011

Ökuleiknin er haldin í samstarfi við:

Guðmundur Karl Einarsson

3. október 2011 22:20