Öll tímarit sem Bindindisfélag ökumanna hefur gefið út í hálfa öld eru nú komin á Netið. Að undanförnu hefur Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn myndað ýmis gömul blöð og tímarit og gert þau aðgengileg á vefslóðinni timarit.is. Í tilefni af 50 ára afmæli Bindindisfélags ökumanna ákvað stjórn félagsins að semja við safnið um að mynda þau þrjú tímarit sem félagið hefur gefið út á þessari hálfu öld. Þetta eru Umferð sem kom út frá 1958 til 1965, Brautin frá 1962 til 1964 og BFÖ-blaðið frá 1966 til 2002. Alls eru þetta um tólf hundruð blaðsíður, sem nú verður hægt að skoða á Internetinu og prenta út. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra opnaði þessa slóð formlega, að viðstaddri Sigrúnu Klöru Hannesdóttur landsbókaverði.

Umferð

Brautin

BFÖ-blaðið

Guðmundur Karl Einarsson

15. janúar 2004 01:27