
Kæri félagsmaður Brautarinnar.
Í byrjun langar mig að þakka þér fyrir áralangan stuðning við félagið okkar, en í haust eru 73 ár frá stofnun þess og tólf formenn / forsetar hafa staðið vaktina þessi ár. Þau okkar sem hafa verið lengi í félaginu þekkja það góða starf sem hefur verið unnið frá upphafi og það er ljóst að þeir félagsmenn sem ruddu brautina eiga heiður skilinn.
Síðasta starfsár stjórnar var með rólegra móti, en við héldum Íslandsmeistarakeppi í Ökuleikni í samstarfi við Bílaumboðið Öskju og tókst keppnin afar vel, ekki síst vegna þess er afkomendur Brynjars M. Valdimarssonar buðu sig fram í dómgæslu og önnur tilfallandi störf. Enn og aftur sannast það að margar hendur vinna létt verk.
Einnig mættum við á Akranes um mitt sumar og tókum þátt í Bylgjulestinni, þar sem boðið var uppá örstutta Ökuleikni fyrir gesti og gangandi. Um 50 manns fengu að prófa sig í brautinni okkar og alltaf kemur það á óvart, hve fólki finnst þetta skemmtilegt og um leið ganglegt. Við getum verið stolt af þessari keppni okkar, hún er sígild.
Stjórnin hélt tvo formlega stjórnarfundi, auk þess sem síminn og skilaboðakerfi ýmiskonar voru óspart notuð. Vinnan okkar þess á milli fólst í mestu að halda uppi góðum og gildum áróðri á samfélagsmiðlum, bæði vegna notkunar áfengis og annara vímuefna við stjórn ökutækja og ekki síst að hafa skoðun á umferðarmálum almennt.
Heimasíðan BEINA BRAUTIN.is var opnuð nýverið, en Einar Guðmundsson, Guðmundur Karl Einarsson og Árni Einarsson eiga heiðurinn af henni. Þarna má nálgast miklar og góðar upplýsingar um áhrif áfengis og annara vímuefna á aksturhæfni og umferðaröryggi. Tilgangurinn er að gera efni aðgengilegt og sérstaklega fyrir nemendur í lífsleikni framhaldsskólanna. Verkefnið var unnið með styrk frá Stiftelsen Ansvar för framtiden í Svíþjóð. Til hamingju öll sömul með þessa glæsilegu heimasíðu og takk strákar fyrir ykkar vinnu í þessu verkefni.
Það verður þó að viðurkennast að félagsstörf sem þessi taka sinn tíma og stjórnarmeðlimir eru jú allir í öðrum störfum, bæði launuðum og ólaunuðum. Í því sambandi hefur t.d. verið rætt um hve heppnir við vorum að láta frá okkur Veltibílinn til Landsbjargar, þar sem hann mun gera gagn um ókomin ár. Þetta var gert á hárréttum tíma, vinnan sem lenti á okkur fáum var talsverð og við finnum það sérstaklega nú, hve mikil hún var orðin.
Framundan er aðalfundur okkar sem verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2026 kl. 17:00 í Hverafold 1-3. þar sem dagskrá er hefbundin. Stjórnin ákvað að boða ekki til þessar fundar með hefbundu bréfi sem sent er með pósti, heldur einungis með rafrænum hætti, þ.e.a.s. í tölvupósi, auk tilkynningar á heimasíðu og Facebook. Þetta er gert til þess að spara vinnu, spara pening og um leið undirbúa fólk að breytingar séu hjá félaginu að öllu óbreyttu.
Stjórn hefur að sjálfsögu rætt talsvert um framtíð félagsins og er sammála um að líklega muni félagið lognast út af innan fárra ára. Endurnýjun félaga er ekki til staðar og það sama má segja um stjórn síðustu árin. Því hefur stjórn ákveðið að innheimta ekki félagsgjöld þetta árið og leggur til að svo verði ekki gert næstu misserin.
Undirritaður á eftir amk 1 ár sem kosinn formaður og það sama má segja um stjórnarmanninn Aðalstein Gunnarsson. Guðmundur Karl Einarsson gjaldkeri gefur kost á sér á ný til tveggja ára. Að sjálfsögu er öllum félögum frjálst að gefa kost á sér til stjórnarsetu.
Núverandi stjórn mun ekki leggja til á þessum aðalfundi að leggja niður félagið, en slíkt þarf að auglýsa og samþykkja á aðalfundum skv. lögum félagsins.
Bestu kveðjur
Páll Halldór Halldórsson
Formaður.
Páll H. Halldórsson
6. apríl 2026 22:41
