Áfengið og þrönga hliðið

Routemaster

Þann 1. júní 1962 birtist grein í Brautinni, félagsriti Bindindisfélags ökumanna. Í greininni er fjallað um athyglisverða tilraun sem gerð var á breskum strætisvagnabílstjórum. Hún fólst í að hópur strætisvagnabílstjóra var fenginn til þess að aka í gegnum ákveðna braut með mismunandi mikið magn áfengis í blóðinu. Niðurstaðan var afgerandi: Með auknu áfengi í blóði minnkaði hæfni ökumanna á sama tíma og trú þeirra á sjálfum sér jókst. . . .
→ Lesa meira: Áfengið og þrönga hliðið

Hvað kostar leigubíll?

Framundan er skemmtilegur tími, áramótin. Tækifæri til að hitta vini og fjölskyldu og fagna saman. Það er ekki óalgengt að fagna nýju ári með því að skála. Margir láta það ekki nægja heldur fá sér í glas í góðra vina hópi sem ekkert athugavert er við.

Þegar gleðinni lýkur getur verið snúið að komast . . .
→ Lesa meira: Hvað kostar leigubíll?

Fórstu á jólahlaðborðið á bílnum?

Einar Guðmundsson

Nú er tími jólahlaðborðanna í algleymingi. Margir skjótast í hádeginu og fara oft á bílnum því vinnan bíður þegar gómsætum veitingum jólahlaðborðsins hefur verið gerð góð skil. Og það er í raun allt í lagi að fara á bílnum en þá verðum við að velja réttu drykkina með matnum, hafa þá óáfenga. Það er . . .
→ Lesa meira: Fórstu á jólahlaðborðið á bílnum?

Hæfnisakstrar – Lokakeppni í Luton, Englandi

Þátttakendur og starfsmenn í lokakeppni í hæfnisakstri í Reykjavík 21. október 1978

Í 1. tölublaði 7. árgangs BFÖ blaðisins þann 1. janúar 1979 er fjallað um fyrstu Hæfnisaksturskeppnina sem BFÖ hélt. Keppnin hlaut síðar nafnið Ökuleikni. Í blaðinu er sagt frá 10 hæfnisaksturskeppnum sem félagið hélt og tóku 100 manns þátt. Íslandsmeistarinn, Einar Guðmundsson, og sá sem lenti í 2. sæti, Guðmundur Salómonsson (síðar Íslandsmeistari), fóru fyrir hönd Íslands til Luton í Englandi til þess að taka þátt í norrænni Hæfnisaksturskeppni. Greinina má lesa hér á vefnum en hún er fengin frá timarit.is . . .
→ Lesa meira: Hæfnisakstrar – Lokakeppni í Luton, Englandi

Hvenær kemur pabbi heim?

Eftir einn ei aki neinn

„Var það nokkuð pabbi sem maðurinn í útvarpinu var að tala um þegar ölvaður bílstjóri olli slysi og báðir bílsjórarnir liggja nú á spítalanum? Mamma hvenær kemur hann heim?” Nú þegar jólin nálgast eykst verulega hætta á ölvunarakstri í umferðinni. Tölur lögreglu segja það mjög skýrt. Nánast daglega heyrast fregnir af því að ökumenn hafi verið teknir undir áhrifum. Það hefur aukist að fólk fari á jólahlaðborð og fá sér bjór eða annað áfengt með matnum og aka svo heim á eftir. „Þetta var nú bara kannski einn eða tveir, það hlýtur að vera í lagi, ég er örugglega undir mörkunum“ má heyra stundum. . . .
→ Lesa meira: Hvenær kemur pabbi heim?