Aðalfundur Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna verður haldinn fimmtudaginn 24. maí 2018 kl. 17:00. Fundurinn fer fram í Víkurhvarfi 1, gengið er inn að ofanverðu. 

Dagskrá fundarins er samkvæmt 4. greinar laga félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. Reikningsárið er almanaksárið.
  3. Stjórnarkjör.
  4. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
  5. Ákvörðun félagsgjalda.
  6. Önnur mál.

Guðmundur Karl Einarsson

13. apríl 2018 12:28